Landbúnaður mun alltaf vera fjölbreyttur. Sérhvert bú er einstakt og hefur sína eigin leið að velgengni. En öll bú hafa eitt sameiginlegt, þau verða að hafa réttu tækin fyrir þau verkefni sem tekist er á við. DEUTZ-FAHR hefur þróað nýju 6 RC-shift seríuna til þess að geta mætt þörfum sem flestar. Hún samanstendur af 8 módelum í stærðarflokknum frá 161 ha og upp í 230 hö. Í 6 seríunni eru 4 og 6 cylindra mótorar í boði. Að lokum er svo hægt að velja um mismunandi útfærslu á ökumannshúsinu, vinnuaðstöðunni þar sem mestum tíma er varið. Með nýju 6 RC-shift seríunni hefur DEUTZ-FHAR gengið lengra en nokkru sinni fyrr í að mæta þörfum allra með ótrúlegum fjölda af valbúnaði.
Undir húddinu á dráttarvélum í 6 RC-shift seriunni má finna 6.1 og 4.1 lítra DEUTZ mótora sem uppfylla StageV mengunarvarnarstaðalinn. Annálaðir fyrir sparneytni og rekstraröryggi og nú sem fyrr hljóðlátir og skila aflinu vel. Þökk sé nýjum framleiðsluferlum og gæðaeftirliti er nú búið að lengja tímabilið milli olíuskipta upp í 1.000 vinnustundir (eða 2 ár)
RC-shift er rafstýrð gírskipting sem sér um að kúpla og skipta um gíra án þess að hreyfa þurfi við gírstöng eða kúplingspedala. Hún er í grunninn 5 gírar með 6 milligíra og svo skirðgír og í heildina gera þetta 54 hraðaþrep áfram og 27 afturábak. RC-Shift skiptinguna má nota á þrennan hátt.
Handskipt – allar skiptingar framkvæmdar af ökumanni.
Hálfsjálfskipt – Sjálfskipting á milligírum en ekki aðalgírum.
Sjálfskipt – Sjálfskipting á aðal og milligírum.
RC-Shift skiptingin er hönnuð þannig að 50 km/klst hámarkshraða er náð í 2 efstu þrepunum. Í efsta þrepi við lágan snúning til þess að auka sparneytni og svo í næst efsta þrepi við hærri snúning til þess að halda aflinu á háum hraða.
Sama til hvers er litið, þá er hvergi slegið af í búnaði, þægindum og gæðum í nýju 6 RC-shift línunni. Öflugt Load Sensing vökvakerfi með PowerBeyond LS tengjum. Öflug lyftigeta á þrítengibeisli, fjögurra hraða aflúrtak, rúmgott og þægilegt ökumannshús. Mjúk og þæginleg fjöðrun á hásingu sem og húsi. Öflug miðstöð með loftkælingu og síðast en ekki síst hljóðeinangrun í húsinu.
DEUTZ-FAHR leggur mikla áherslu á að fylgja þeim hröðu breytingum sem nú eiga sér stað í landbúnaði á sviði snjalltækni og tengimöguleika. Sem dæmi má nefna ISOBUS tengki og skjái, ásamt GPS búnaði og sjálfstýringar. Leitið upplýsinga hjá sölumönnum um hvað DEUTZ-FAHR getur boðið þér upp á.
Tæknilýsing
Minni stærðir (stærri hér að neðan) | 6160.4 | 6170.4 | 6160 | 6170 | 6180 |
---|
Mótor | Deutz TCD 4.1 - 4 cyl, 4 lítra | Deutz TCD 4.1 - 4 cyl, 4 lítra | Deutz TCD 6.1 - 6 cyl, 6 lítra | Deutz TCD 6.1 - 6 cyl, 6 lítra | Deutz TCD 6.1 - 6 cyl, 6 lítra |
---|
Hámarksafl (ECE R120) | 161 ha | 171 ha | 161 ha | 171 ha. | 181 ha. |
---|
Hámarksafl með aflauka (boosti) | 171 ha | Ekki Boost | 171 ha | Ekki Boost | 192 hö |
---|
Stærð hráolíu tanks / Ad Blue tanks (L) | 300 / 21 | 300 / 21 | 350 / 29 | 350 / 29 | 350 / 29 |
---|
Gírskipting | RC-Shift rafskipting | RC-Shift rafskipting | RC-Shift rafskipting | RC-Shift rafskipting | RC-Shift rafskipting |
---|
Fjöldi gíra | 54 áfram / 27 aftur | 54 áfram / 27 aftur | 54 áfram / 27 aftur | 54 áfram / 27 aftur | 54 áfram / 27 aftur |
---|
Stærð vökvadælu (Staðalbúnaður / Val) | 84 l/min / 160 l/min | 84 l/min / 160 l/min | 84 l/min / 160 l/min | 84 l/min / 160 l/min | 84 l/min / 160 l/min |
---|
Fjöldi vökvaúrtaka | 4 (5 valbúnaður) | 4 (5 valbúnaður) | 4 (5 valbúnaður) | 4 (5 valbúnaður) | 4 (5 valbúnaður) |
---|
Power Beyond LS tengi | Val (verður að vera LS Dæla) | Val (verður að vera LS Dæla) | Val (verður að vera LS Dæla) | Val (verður að vera LS Dæla) | Val (verður að vera LS Dæla) |
---|
Beislisbúnaður að aftan | Rafstýrt CAT III | Rafstýrt CAT III | Rafstýrt CAT III | Rafstýrt CAT III | Rafstýrt CAT III |
---|
Lyftigeta að aftan | 6.200 kg (9.700 kg val) | 6.200 kg (9.700 kg val) | 6.200 kg (9.700 kg val) | 6.200 kg (9.700 kg val) | 6.200 kg (9.700 kg val) |
---|
Lyftigeta frambúnaður (Val) | 3.800 kg | 3.800 kg | 3.800 kg | 3.800 kg | 5.450 kg |
---|
Dekkjastærð (stærstu dekk) | 600/60R28 og 710/60R38 | 600/60R28 og 710/60R38 | 600/60R28 og 710/60R38 | 600/60R28 og 710/60R38 | 600/60R30 og 710/60R42 |
---|
DEUTZ-FAHR | DEUTZ-FAHR | DEUTZ-FAHR | DEUTZ-FAHR | DEUTZ-FAHR | DEUTZ-FAHR |
---|
Stærri stærðir (2) | 6190 | 6210 | 6230 |
---|
Mótor (2) | Deutz TCD 6.1 - 6 cyl, 6 lítra | Deutz TCD 6.1 - 6 cyl, 6 lítra | Deutz TCD 6.1 - 6 cyl, 6 lítra |
---|
Hámarksafl (ECE R120) (2) | 192 hö | 216 hö | 217 hö |
---|
Hámarksafl með aflauka (boosti) (2) | Ekki Boost | Ekki Boost | 230 hö |
---|
Stærð hráolíu tanks / Ad Blue tanks (L) (2) | 350 / 29 | 410 / 29 | 410 / 29 |
---|
Gírskipting (2) | RC-Shift rafskipting | RC-Shift rafskipting | RC-Shift rafskipting |
---|
Fjöldi gíra (2) | 54 áfram / 27 aftur | 54 áfram / 27 aftur | 54 áfram / 27 aftur |
---|
Stærð vökvadælu (Staðalbúnaður / Val) (2) | 120 l/min / 160 l/min | 120 l/min / 160 l/min | 120 l/min / 160 l/min |
---|
Fjöldi vökvaúrtaka (2) | 4 (5 valbúnaður) | 4 (5 valbúnaður) | 4 (5 valbúnaður) |
---|
Power Beyond LS tengi (2) | Val (verður að vera LS Dæla) | Val (verður að vera LS Dæla) | Val (verður að vera LS Dæla) |
---|
Beislisbúnaður að aftan (2) | Rafstýrt CAT III | Rafstýrt CAT III | Rafstýrt CAT III |
---|
Lyftigeta að aftan (2) | 6.200 kg (9.700 kg val) | 6.200 kg (9.700 kg val) | 6.200 kg (9.700 kg val) |
---|
Lyftigeta frambúnaður (Val) (2) | 5.450 kg | 5.450 kg | 5.450 kg |
---|
Dekkjastærð (stærstu dekk) (2) | 600/60R30 og 710/60R42 | 600/60R30 og 710/60R42 | 600/60R30 og 710/60R42 |
---|