Stæðujöfnunartromlur

Við stæðugerð er mikilvægt að dreifingin sé jöfn og einsleit. Skemmdir eiga sér yfirleitt stað við enda eða jaðra vegna ónógrar þjöppunar. Með SiloFox dreifitromlunum er hægt að dreifa hratt og örugglega úr fóðrinu sem tryggir jafna og einsleita verkun og þar með fóðurgæðin.

Helstu kostir SiloFox dreifitromlanna eru

  • Hröð og góð dreifing
  • Sem leiðir af sér meiri tíma til þjöppunar
  • Enginn biðtími við stæuðgerðina
  • Hægt að beygja tromlunni frá köntum (aukabúnaður)
  • Mikið úrval aukabúnaðar.

Sem aukabúnað er hægt að fá vökvatjakka sem beygja tromlunni til hægri eða vinstri og auka þar með dreifimöguleikana.

Allar SiloFox tromlurnar er hægt að fylla með vatni. Með því að þyngja tromluna fæst betri þjöppun og þar með betri verkun og betri fóðurgæði.

SiloFox stæðujöfnunartromlurnar frá MAMMUT koma í 4 grunnútfærslum

  • Classic – 104 cm tromla, vbr. 175 – 215 cm
  • Titan – 115 cm tromla, vbr. 205 – 245 cm
  • Gigant – 128 cm tromla, vbr. 230 cm – 280 cm
  • Koloss – 148 cm tromla, vbr. 260 cm – 290 cm

Tæknilýsing

MódelÞvermálBreiddÞyngd (með vatni)AflþörfVinnslubreidd
SF 175 Classic1.040 mm1.730 mm460 kg (810 kg)60 hö2.500 mm
SF 195 Classic1.040 mm1.930 mm480 kg (830 kg)60 hö2.650 mm
SF 215 Classic1.040 mm2.130 mm530 kg (880 kg)70 hö2.850 mm
SF 205 Titan1.150 mm2.050 mm690 kg (1.140 kg)80 hö2.700 mm
SF 245 Titan1.150 mm2.450 mm790 kg (1.240 kg)90 hö3.100 mm
SF 230 Gigant1.280 mm2.300 mm990 kg (1.990 kg)100 hö3.000 mm
SF 280 Gigant1.280 mm2.800 mm1.040 kg (2.040 kg)120 hö3.500 mm
SF 260 Koloss1.480 mm2.600 mm1.400 kg (2.400 kg)140 hö3.400 mm
SF 290 Koloss1.480 mm2.900 mm1.530 kg (2.530 kg)160 hö3.700 mm

PDF skjöl

Vefverð

Hafa samband 568-1500
Senda með tölvupósti
Vörunúmer: XXMASILOFOX Flokkur: