KUBOTA M4003 serían er dráttarvélalína frá KUBOTA í stærðunum 66 og 74 hestöfl. Þetta er stærðarflokkur sem hentar einstaklega vel fyrir bændur og aðra sem vilja nettar, liprar og sparneytnar vélar.
Við hönnun á nýju M4003 seríunni var hlustað á þarfir bænda og tekið tillit til þeirra. Öll aðstaða ökumanns var bætt til muna, farþegasæti er nú staðalbúnaður og öll stjórntæki dráttarvélarinnar eru á góðum stað í stjórnborðinu hægra megin við ökumannssætið
KUBOTA M4003 serían er útbúin nýjustu mengunarvörnum og uppfyllir EURO V mengunarvarnarstaðalinn. Á merkilegan hátt hefur hönnuðum KUBOTA tekist að koma öllum mengunarvarnarbúnaðinum fyrir undir vélarhlíf traktorsins svo að ekki spilli hann fyrir útsýninu.
Mótor
Í KUBOTA M5002 er 4 cylindra 3,8 lítra KUBOTA diesel mótor með forþjöppu og millikæli. Sparneytinn og gangþýður mótor sem hefur reynst mjög vel. Mótorinn uppfyllir alla helstu mengunarvarnastaðla og nær því með DPF sótkornasíu.
Gírkassi
Í KUBOTA M4003 línunni er 6 gíra kassi með 3 drifum, Háu/Lágu og skriðgír. Samtals gera þetta 18 gíra áfram og 18 gíra afturábak. Til hægðarauka er kúplingsrofi í gírstönginni þ.a. ekki þarf að stíga á kúplinguna við gírskiptingar. Vendigírinn er kúplingfrír og mjúkur. Vendigírsrofinn er mjög vel staðsettur vinstra megin við stýrishjól. Sem valbúnað er hægt að fá M4073 týpuna með 1 kúplingsfríum vendigír sem fjölgar þá gírum í 36 áfram og 36 aftur.
Vökvakerfi
Í KUBOTA M4003 línunni er 64 l/min tannhjóladæla fyrir vökvaúrtök, tæki og beisli. Sér dæla er svo fyrir stýri og gírskiptingu sem tryggir að vélin er ávallt létt í stýri. Tvö tvöföld vökvaúrtök eru staðlabúnaður en við höfum yfirleitt bætt 3ja vökvaúrtakinu við.
Tengibúnaður
Aftubeislið er mekanískt en sem valbúnað er hægt að fá það rafstýrt. Dráttarkrókurinn er lyftutengdur og útskjótanlegur frá Dromone og honum fylgja bæði krókur og kjammi.
Ökumannshús
Ökumannshúsið er bjart og útýsinið er gott. Í því er öflug miðstöð með loftkælingu. Loftpúðafjaðrandi Grammer sæti og niðurfellanlegt farþegasæti. 2 LED vinnuljósakastarar að framan og 2 LED vinnuljósakastarar aftur ásamt blikkljósi.
Tæknilýsing
Tæknilýsing | M4063 | M4073 |
---|
Mótor | 4cylindra, 3,3 lítra KUBOTA mótor | 4cylindra, 3,3 lítra KUBOTA mótor |
---|
Hámarsk afl (hö) | 66 | 74 |
---|
Gírkassi | 6 gíra kassi með L/M/H drifi. | 6 gíra kassi með L/M/H drifi. |
---|
Fjöldi gíra | 18 áfram og 18 aftur | 18 áfram og 18 aftur |
---|
Vendigír | Kúplingsfrír vendigír | Kúplingsfrír vendigír |
---|
Hámarkshraði | 40 km/klst við lágan snúning | 40 km/klst við lágan snúning |
---|
Aflúrtakshraðar | 540 / 540 E (Val 540 / 1000) | 540 / 540E (Val 540 / 1000) |
---|
Drifbúnaður | Fjórhjóladrif og driflæsing á afturöxli, tregðulæsing á framhásingu | Fjórhjóladrif og driflæsing á afturöxli, tregðulæsing á framhásingu |
---|
Vagnbremsur | Vökvavagnbremsur | Vökvavagnbremsur |
---|
Stjórnun þrítengibeislis | Stangarstýrt beisli (Val um rafstýrt beisli) | Stangarstýrt beisli (Val um rafstýrt beisli) |
---|
Lyftigeta á þrítengibeisli (kg): | 2.500 | 2.500 |
---|
Krókur | Vökvaútskjótanlegur lyftukrókur með krók og kjamma | Vökvaútskjótanlegur lyftukrókur með krók og kjamma |
---|
Vökvadæla | 63 l/mín vökvadæla og 20 l/mín óháð stýrisdæla. | 63 l/mín vökvadæla og 20 l/mín óháð stýrisdæla. |
---|
Dekkjastærð | 820/85R20 að framan og 420/85R30 að aftan | 820/85R20 að framan og 420/85R30 að aftan |
---|
--------- | . | . |
---|
Ámoksturstæki | KUBOTA LK1500 M með dempara og EURO ramma | KUBOTA LK1500 M með dempara og EURO ramma |
---|
Lyftigeta LK1900M | 1.900 kg. við jörðu annars 1.500 kg. | 1.900 kg. við jörðu annars 1.500 kg. |
---|
Framleiðandi ámoksturstækja | M-X | M-X |
---|