45LT gripaflutningakerran er vinsælasta kerran sem að við seljum. Hún hentar vel fyrir léttari pallbíla og jeppa. Hún rúmar 3-4 hesta mjög vel og er mjög stöðug í drætti.
Allar gripaflutningakerrur frá BATESON eru með galvaniseraðari grind og 2mm álhliðum og plasthúðuðu galvaniseruðu stáli í toppnum. Gólfið er úr 18 mm mótakrossvið sem klæddur er með álplötu með gripáferð. Rampurinn er klæddur mótakrossvið svo síður glamri í honum þegar hross á járnum eru leidd upp í kerru.
45LT kerran er ríkulega búin og má þar nefna
Sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólum.
Sjálfvirkur útsláttur á bremsum þegar bakkað er.
Hliðarhurð hægra megin
Hliðgrindur á rampi
Gúmmímottur í gólfi
1 þverskilrúm ( sem aukabúnað má fá fleiri þverskilrúm í kerruna)
Ljós
Varadekk og nefhjól
Tæknilýsing
Eiginþyngd | 850 kg. |
---|
Burðargeta | 2.250 kg. |
---|
Utanmál (LxBxH) | 34,40 x 2,27 x 2,32 (m) |
---|
Innamán (LxBxH) | 3,00 x 1,73 x 1,80 (m) |
---|
Dekkjastærð | 205 x 16 |
---|
Hæð dráttarkúlu | 500 mm |
---|