Pendislide Start er dreifibóma með dragskóm sem eru til þess gerðir að "greiða" mykjuna betur ofan í svörðinn og þar með vernda plönturnar og minka líkur á mengun í fóðri.
Hún kemur í vinnslubreiddinni 9-12 metra. Með 25 og 28 cm bili milli stúta.
Start bóman er smíðuð úr hágæða sterku stáli, hönnuð til að vera létt viðbót aftan á tankinn og heitgalvanseruð til að lengja líftímann.
Hún er hönnuð fyrir sérútbúna tanka með festingum aftan á hvort sem það eru tankar frá Joskin eða öðrum,
hún er einnig fánleg með festingum fyrir lyftubeisli aftan á tönkum eða aðrar sérsmíðaðar lausnir.
Start bóman er útbúin sérstæðri vökvakistu með stjórnboxi inn í vél sem er annaðhvort tengd við venjulega tvívirka vökvasneið eða Loade sensing kerfi
og því auðvelt að tengja hana aftan á hvaða tank sem er, eina sem þarf er rafmagn, Power slöngu, return slöngu og LS slöngu ef það er möguleiki.
Pendislide Start dreifibóman kemur því tilbúin með öllum þeim kerfum sem hún þarf til að starfa eðlilega bæði með LS vökvakerfum og venjulegum (open or closed circuit).
bóman er útbúin með lóðréttum hjámiðju-söxunardeili með stillanlegu flæði og steinagildru, sem sér um að tryggja jafnt og óhindrað flæði mykju í allar slöngurnar.
Einnig er hægt að fá bómurnar útbúnar með venjulegum dreifistút framhjá slöngunum til að dreifa þykkri og erfiðari mykju.
Tæknilýsing
Módel | 90/36PS1 | 105/42PS1 | 120/44PS1 |
---|
Vinnslubreidd | 9 metrar | 10.5 metrar | 12 metrar |
---|
Fjöldi slanga | 36 stk | 42 stk | 44 stk |
---|
Bil milli slanga | 25 cm | 25 cm | 28 cm |
---|
Fjöldi söxunar-deila | 1 | 1 | 1 |
---|
Þyngd frá | 1300 kg | 1400 kg | 1500 kg |
---|