JOSKINframleiðir taðdreifara með burðargetu frá 8 tonnum og upp í 26 tonn. Þetta eru taðdreifarar með færibandi í botninum og sniglum að aftan.
FERTI-CAP dreifararnir frá JOSKIN henti mjög vel hér á landi en þeir eru fáanlegir í stærðum frá 8 – 12 tonn og þá 6,91 – 13,97 m3 – Þeir eru heilgalvansieraðir, með fjaðrandi beisli, 2 lóðréttum sniglum með höggdempandi tengikúplingu og viðsnúanlegum slitblöðum úr HARDOX, 14 mm keðjur í botni, vökvavagnbremsur og margt fleira.
JOSKIN FERTI-CAP staðalbúnaður:
- Walterscheid drifskaft með brotboltaöryggi
- Galvaniseraðir
- Fjaðrandi beisli
- Tveir 1.080 mm. sniglar með viðsnúanlegum HARDOX slitblöðum
- 1000 snúninga aflúrtak
- Flæðisstillir fyrir hraða færibands
- Kastvörn að framan
- 14 mm keðjur í færibandi
- Vökvavagnbremsur
- Vökvaopnanleg hurð fyrir framan snigla
- Innfelldur LED ljósabúnaður
- 3ja ára ábyrgð.
Tæknilýsing
Upplýsingar á einni hásingu |
---|
Módel | Burðargeta | Rúmmál |
---|
FC4008/9U | 8 tonn | 9,01 m3 |
---|
FC5008/10U | 10 tonn | 10,54 m3 |
---|
FC5508/12U | 12 tonn | 12,29 m3 |
---|
Upplýsingar á tveimur hásingum. |
---|
FC5508/12BU | 12 tonn | 12.29 m3 |
---|